Matur & Vín
Kvöldverður | Miðvikudagur – Laugardagur | 18:00 – 23:00
Maturinn á Laut byggir á því að öll hráefni séu í grunninn frá Íslandi, og leitum við til annarra Norðurlanda eftir þörfum. Hugsjón okkar byggir á djúpri virðingu fyrir landinu og þeirri meginreglu að nýta allt hráefni til fulls og koma í veg fyrir alla sóun. Við vinnum eingöngu með ábyrgum framleiðendum og nýtum fjölbreytt villt hráefni sem tínd eru í náttúrunni. Leitast er við að velja fisk af villtri veiði þegar það á við, kjöt og alifuglar koma frá bændum þar sem dýrin fá frjálsræði til að hreyfa sig, og grænmetið er lífrænt ræktað eins og kostur er.
Kvöldupplifunin birtist í um 15 rétta smakkseðli sem leiðir gesti í gegnum matargerðarlist hússins. Drykkjarseðillinn fylgir nákvæmlega sömu meginreglum og maturinn með áherslu á sjálfstæða vínbændur – þar sem aðaláherslan er á Evrópu – og lágmarks inngrip í víngerð. Einnig bjóðum við upp á sérvalda kokteila sem tóna við seðilinn, bjór frá minni handverksbrugghúsum, ásamt kaffi og te sem er valið af sömu kostgæfni.
Matur : 27.500 kr.
Vínpörun : 18.500 kr.
Matseðill – Kvöld
Matseðillinn getur tekið breytingum án fyrirvara eftir framboði á hráefni.
Bistró | Þriðjudagur – Sunnudagur | 10:00 – 17:00
Líflegt og afslappaðra rými þar sem aðaláherslan er á sömu hágæða gæði og sömu sjálfbæru hugsjón og á kvöldin, en í einfaldari og fljótlegri búningi. Hér er ekki um smakkseðil að ræða heldur er matseðillinn à la carte, auk þess sem boðið er upp á rétt dagsins á virkum dögum.
Við leggjum áherslu á lifandi úrval af vínum sem skiptast oft út, þar sem hægt er að fá frábér vín á mjög þægilegu verði, samhliða vönduðu kaffi, tei, ferskum safum og öðrum drykkjum og léttari réttum fyrir dagtímann.
Matseðill kemur bráðlega
