Laut
Laut opnar í september 2026 og býður upp á hlýlega og vandaða matreiðslu þar sem árstíðabundið hráefni, nærumhverfið og sjálfbærni eru í fyrirrúmi, matreitt af virðingu fyrir norrænni matargerðarhefð.
Laut er fjölskyldufyrirtæki stofnað af Arnóri Inga Bjarkasyni — eiganda og yfirkokki á Skóg í Litháen og fyrrum eiganda og yfirkokki á Red Brick — ásamt bróður hans, Sigurði Birni, og foreldrum þeirra, Laufeyju og Bjarka. Á ferli sínum í Litháen hlaut Arnór Grænu Michelin-stjörnuna á Red Brick og stýrði Skóg inn í Michelin-guide-inn á sínu fyrsta starfsári, stað sem hann á og rekur enn. Samhliða rekstrinum ytra var stefnan tekin á að opna einnig stað á Íslandi og færa persónulega, einlæga og hlýlega gestrisni í hjarta starfseminnar.
Nafnið Laut vísar í skjólgóða dæld eða hvamm í náttúrunni og endurspeglar skjól, ró og notalegt umhverfi. Hver einasti hluti af Laut er mótaður af náttúrunni, fjölskyldunni og djúpri virðingu fyrir landi og hráefni.
