Bókanir - Koma bráðlega
VINSAMLEGAST LESIÐ FYRIR BÓKUN:
II-VII 10:00 – 17:00 – Laut Bistro
Á daginn ríkir hjá okkur ljúf stemning þar sem boðið er upp á kaffi, hádegisverð og léttar veitingar. Öll eru hjartanlega velkomin og engin aldurstakmörk. Ekki er nauðsynlegt að bóka borð, en alltaf gott að tryggja sér sæti fyrirfram.
III-VI 18:00 – 23:00 – Laut veitingastaður
Ofnæmi og séróskir: Vinsamlegast látið okkur vita af ofnæmum eða séróskum með minnst 48 klukkustunda fyrirvara. Við getum ekki ábyrgst að geta komið í veg fyrir kross-smit.
Afbókanir: Fullt verð smakkseðilsins er gjaldfært á hvern gest ef bókun er afbókuð með minna en 48 klukkustunda fyrirvara. Ykkur er að sjálfsögðu frjálst að framselja bókunina til annars gests ef þið forfallist.
Mæting: Vinsamlegast mætið á réttum tíma. Frátekið borð er haldið í 15 mínútur áður en bókun telst afbókuð og afbókunargjald er gjaldfært.
Aldurstakmark: Til að tryggja sem besta upplifun í kvöldverðarþjónustunni miðum við við 8 ára aldurstakmark, þar sem kvöldmatseðillinn okkar er fjölrétta og tekur sinn tíma að njóta.
Stórir hópar: Fyrir hópa skipaða 8 manns eða fleiri, vinsamlegast hafið samband við okkur í tölvupósti á info@lautrestaurant.is.
